28 apr. 2010Hjálmum hefur bæst liðsauki og hann ekki af verri endanum en nú er ljóst að Samúel Samúelsson básúnuleikari með meiru mætir með nokkra félaga sína til leiks sem þéttir bandið og gefur meiri möguleiki á fjölbreyttari sveiflum. Samúel og félagar hafa áður leikið með Hjálmum og einnig hafa þeir troðið upp með Sálarmönnum svo eitthvað sé nefnt. Þetta eru frábærar fréttir og hafa Hjálmar og co. lofað einstöku balli á Broadway næsta laugardag. Allar upplýsingar um miðasölu er að finna [v+]http://www.teiti.is/kki/midar_kki_10.html[v-]hér[slod-] en hægt er að kaupa miða í mat og ball eða bara á ballið með Hjálmum. Nú er um að gera að breiða út boðskapinn og hvetja alla til að mæta og taka þátt í því að gera upp glæsilegt körfuboltaár. Áfram körfubolti og sjáumst á Broadway á laugardaginn.