21 apr. 2010Háskólinn í Reykjavík er að hefja kennslu á meistarastigi í íþróttafræði í haust. Þetta er gott tækifæri fyrir áhugasama þjálfara að ná sér í meiri menntun eða þá sem hafa áhuga á því að snúa sér að þjálfun í framtíðinni. Tvær nýjar meistaranámsbrautir MSc í þjálffræði íþrótta – Exercise Science and Coaching MEd í íþrótta- og uppeldisfræði – Sport Education Háskólinn í Reykjavík hefur á örfáum árum skapað sér sess sem leiðandi afl í menntun íþróttafræðinga til BSc gráðu hér á landi. Með meistaranáminu verður mikilvægt skref tekið til að auka sérhæft námsframboð og rannsóknir á sviði íþróttafræða. Í fyrsta sinn á Íslandi gefst tækifæri til að mennta sig til meistaraprófs í íþróttaþjálfun, en MSc í þjálffræði íþrótta – Exercise Science and Coaching er námsbraut sem er sérstaklega hönnuð fyrir þá sem hafa áhuga á íþróttaþjálfun og rannsóknum íþrótta. MEd í íþrótta- og uppeldisfræði – Sport Education er námsbraut sem ætluð er þeim sem vilja sérhæfa sig í íþróttakennslu og lífsstílsfræði. Kynningarfundur um meistaranámið verður mánudaginn 26. apríl, kl. 16:00-17:00 í Háskólanum í Reykjavík að Menntavegi 1, Nauthólsvík, í stofu M 1.01 BELLATRIX (innst á ganginum til vinstri á fyrstu hæð). Á fundinum gefst áhugasömum kostur á að kynna sér námið betur og ræða við kennara og starfsfólk íþróttafræðisviðs HR. Upplýsingar um námið er einnig að finna á heimasíðu skólans [v+]http://www.hr.is/kld[v-]hér[slod-]