18 apr. 2010Keppni klárast í nokkrum flokkum í dag en fimm nýir meistarar verða krýndir. Á Selfossi ráðast úrslitin í 2. deild karla en þar eru fjögur lið eftir sem eru að keppast um að fara í 1. deild. Úrslitaleikurinn er kl. 16.00 í Iðu. Hægt er að fylgjast með beinni tölfræðilýsingu hér á vefnum. Í Smáranum klárast keppni í 10. flokki drengja, Stúlknaflokki og Drengjaflokki en úrslitaleikirnir eru kl. 10.00, 12.00 og 14.00. Leikirnir verða sýndir beint á netinu og hægt er að nálgast þá [v+]http://wms1a.straumar.is/kr-karfa [v-]hérna[slod-]. Á Ásvöllum fer fram lokamótið í 8. flokki drengja í 2. deild. Haukar stóðu best að vígi fyrir lokamótið en keppni er afar jöfn í mótinu og ráðast úrslit síðar í dag.