18 apr. 2010Nú kl. 10.00 hófst úrslitaleikurinn í 10. flokki karla en í gær fóru fram undanúrslit. Njarðvík lagði Fjölni og KR lagði Hamar/Þór Þ. Því mættust KR og Njarðvík í dag og eftir æsispennandi leik sigraði Njarðvík [v+]http://www.kki.is/widgets_game.asp?league_id=undefined&season_id=348&game_id=47057 [v-]56:69[slod-] og eru því Íslandsmeistarar 2010. Birgir Snorri Snorrason var valin maður leiksins en hann var með 19 stig og 8 fráköst fyrir þá grænu. KKÍ óskar Njarðvík til hamingju með titilinn.