18 apr. 2010Nú er komið í ljós hvaða lið fara í úrslit 2. deildar karla og þar með upp í 1. deild að ári. Undanúrslitin fóru fram í morgun og þar voru það Laugdælir sem sigruðu Álftanes 101:74 og Leiknir lagði ÍG 93:82. Eftir leiki dagsins í úrslitalkeppni 2. deildar karla er þar með er ljóst að Laugdælir og Leiknir Reykjavík hafa unnið sér rétt í 1. deild að ári í staðin fyrir lið ÍA og Hrunamanna sem féllu í ár. Liðin leika til úrslita í dag kl. 16.00, en eins og áður segir, fara bæði upp um deild hvernig sem fer. ÍG og Álftanes mætast í leik um 3. sætið. Félag Litháa og Árborg leika um 5. sætið og HK og ÍBV leika um 7. sætið. Þessir leikir eru rétt að hefjast og eru í beinni tölfræðilýsingu hér á kki.is undir "Leikir og úrslit" hér til hægri á síðunni.