18 apr. 2010Úrslitaleikur 2. deildar karla fór fram kl. 16.00 í Iðu á Selfossi í dag og lauk rétt í þessu. Leikar fóru þannig að Laugdælir sigruðu 84:76 eftir að hafa verið tveimur stigum undir í hálfleik. Góður 3. leikhluti skóp sigurinn en hann unnu þeir með 10 stigum og sá munur hélst út leikinn. Laugdælir stóðu sig frábærlega í vetur, unnu alla leiki sína, 16 í deildarkeppninni og svo fjóra um helgina í úrslitunum og það verður gaman að fylgjast með gengi þeirra á næstu leiktíð í 1. deild karla. Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, afhenti Laugdælum verðlaun í mótslok. Mynd: Guðmundur Karl · www.sunnlenska.is