18 apr. 2010Leik Hauka og Snæfells var að ljúka rétt í þessu en eftir mjög jafnan og skemmtilegan leik sigruðu Haukastúlkur og eru því Íslandsmeistarar 2010. Leiknum lauk 70:68 en Snæfell fékk tvö tækifæri til að jafna eða sigra í lokin en Haukar héldu sínu og sigruðu. Besti maður leiksins var valin Margrét Hálfdánardóttir, Haukum, en hún var með 21 stig, 15 fráköst og 8 stoðsendingar í leiknum sem er glæsileg frammistaða. KKÍ óskar Haukum til hamingju með titilinn.