17 apr. 2010Keflavíkurstúlkur urðu Íslandsmeistarar í 9. flokki kvenna þegar þær lögðu Breiðablik að velli [v+]http://www.kki.is/widgets_game.asp?league_id=undefined&season_id=355&game_id=46987[v-]64-53[slod-] í frábærum leik. Ingunn Embla Kristíndardóttir var valin maður leiksins en hún var stigahæst með 14 stig eins og þær Katrín Fríða Jóhannsdóttir og Sara Hinriksdóttir. Ingunn tók síðan 11 fráköst og var með 28 í framlag. Hjá Breiðablik skoraði Hallveig Jónsdóttir 16 stig og tók 15 fráköst. Keflavík vann alla leiki sína í deild og bikar í vetur í 9. flokki kvenna og er það sannarlega glæsilegur árangur. Umfjöllun og myndir úr leiknum er á [v+]http://www.karfan.is/frettir/2010/04/17/keflavik_islandsmeistari_i_9._flokki_kvenna:_fullt_hus[v-]Karfan.is[slod-]. KKÍ óskar stelpunum og Keflavík til hamingju með titilinn.