16 apr. 2010Í dag hefst keppni í úrslitum yngri flokka en keppt er í Smáranum. Keppni í 9. flokki kvenna hefst í dag en þá leika til undanúrslita Keflavík og Grindavík annars vegar og Njarðvík og Breiðablik hinsvegar. Á morgun eru svo fleiri undanúrslitaleikir en þessir flokkar spila um helgina: Drengjaflokkur, Stúlknaflokkur, 10. flokkur karla og 9. flokkur kvenna. Hægt er að sjá dagskrá mótsins [v+]http://www.kki.is/widgets_home.asp[v-]hérna[slod-].