16 apr. 2010Nú um helgina stendur yfir fyrri hluti úrslitakeppni yngri flokka í Smáranum. Hófst hún með tveimur hörkuleikjum í 9. flokki kvenna þar sem Keflavík og Breiðablik komust áfram í lokauppgjör um titilinn. Blikar hafa ákveðið að senda beint út frá leikjum helgarinnar og hefja útsendingar kl. 09:00 í fyrramálið þegar 10. flokkur karla hefja leik. Útsendingarnar fara fram í góðri samvinnu við [v+]http://www.kr.is/karfa [v-]KR TV[slod-] og er hægt að nálgast þær á vefþjóni þeirra Vesturbæinga. Til að byrja með verða undanúrslitaleikirnir einungis sýndir án þess lýsingar en þaulvanir þulir taka við stjórninni í úrslitaleikjunum sjálfum. Fyrsti úrslitaleikur hefst kl. 19:00 annað kvöld hjá 9. flokki kvenna. Hægt er að smella á eftirfarandi hlekk til að horfa á útsendinguna eða nálgast hann á síðum KR eða Breiðabliks: [v+]http://wms1a.straumar.is/kr-karfa [v-]wms1a.straumar.is/kr-karfa[slod-]