9 apr. 2010Stöð 2 Sport hefur staðið sig frábærlega í útsendingum sínum frá úrslitakeppnum undanfarin ár og ekkert lát verður á því á næstunni. Sýnt verður beint frá 4. leik í viðureign KR og Snæfells á mánudaginn kemur. Liðin leika áður leik # 3 á morgun laugardag í DHL-höllinni. Staðan er 1:1 í einvígi liðanna. Ef til þess kemur mun svo leikur Njarðvíkur og Keflavíkur verða sýndur þriðjudaginn 13. apríl, en þessi lið mætast áður í Keflavík á sunnudaginn kemur. Fari svo að Keflavík vinni þann leik fara þeir áfram 3:0 og enginn leikur verður því á þriðjudaginn. Sigri Njarðvík næsta leik verður sýnt á þriðjudeginum. Komi til oddaleikja á fimmtudaginn verður útsending um kvöldið. Þess má svo geta að allir leikir í lokaúrslitunum verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Leikjaplan undanúrslitanna: KR-Snæfell: Leikur 3 Laugardagur 10. apríl · KR-Snæfell DHL-höllin kl. 16.00 Leikur 4 Mánudagur 12. apríl · Snæfell-KR Stykkishólmur kl. 19.15 (ef þarf) Leikur 5 Fimmtudagur 15. apríl · KR-Snæfell DHL-höllin kl. 19.15 (ef þarf) Keflavík-Njarðvík: Leikur 3 Sunnudagur 11. apríl · Keflavík-Njarðvík Toyota-höllin kl. 19.15 Leikur 4 Þriðjudagur 13. apríl · Njarðvík-Keflavík Njarðvík kl. 19.15 (ef þarf) Leikur 5 Fimmtudagur 15. apríl · Keflavík-Njarðvík Toyota-höllin kl. 19.15 (ef þarf)