7 apr. 2010Í nótt fór fram úrslitaleikur NCAA kvenna og þar var það Connceticut (Uconn) sem sigraði annað árið í röð með 53:47 sigri á Stanford. Lið Uconn hefur verið frábært undanfarin tvö ár og hefur ekki tapað 78 leikjum í röð sem er frábær árangur. Maya Moore var með 23 stig og 11 fráköst í leiknum en hún var jafnframt valin besti leikmaður ársins. Kayla Pedersen var með 15 stig og 17 fráköst fyrir Stanford.