31 mar. 2010Hamar · KR - Úrslit kvenna · Leikur 3 KR sigraði í kvöld lið Hamars í lokaúrslitum kvenna og tóku þar með forystu í einvíginu 2:1. Leiknum lauk með 22 stiga sigri KR stúlkna, 83:61, og þær geta á laugardaginn með sigri í Hveragerði hampað titlinum. Jafni Hamar metin verður oddaleikur á þriðjudaginn eftir páska. Unnur Tara var með sannkallaðan stórleik hjá KR og skoraði 33 stig og tók 8 fráköst og Jennifer og Signý voru með 15 og 14 stig. Hjá Hamar var Koren Schram með 19 stig og Sigrún Sjöfn 15 stig og 10 fráköst. Tölfræði leiksins má [v+]http://www.kki.is/widgets_game.asp?league_id=undefined&season_id=303&game_id=46610 [v-]sjá hérna[slod-].