31 mar. 2010Nú er ljós að tveir verða í framboði til forseta FIBA Europe þann 15. maí næstkomandi. Kosið verður í München en þar mun þing forseta og framkvæmdastjóra allra aðildarsambanda FIBA Europe verða haldið. Okkar maður, Ólafur Rafnsson, mun eins og kunnugt er vera í framboði en hann er fyrrverandi formaður KKÍ, núverandi forseti ÍSÍ og núverandi stjórnarmaður FIBA Europe ásamt því að hafa verið í fleiri nefndum innan sambandsins í gegnum tíðina. Fyrir skömmu bættist svo Turgay Demirel frá Tyrklandi við í framboðið en hann er forseti Tyrkneska sambandsins og varaforseti FIBA Europe. Hann hefur áður boðið sig fram til forseta en þá hlaut hann ekki kosningu. Við óskum Ólafi alls hins besta í komandi framboði þann 15. maí. en ljóst er að hann nýtur talsverðs stuðnings annara sambanda.