30 mar. 2010Ákveðið hefur verið að halda hið árlega Molduxamót fyrir 40 ára og eldri laugardaginn 17. apríl en mótið mun fara fram í „Síkinu“ á Sauðárkróki. Keppt verdur bæði í karla og kvennaflokkum og einnig gefst einstaklingum kostur á að skrá sig og verða sett saman lið fyrir alla þá sem gera það. Þáttökugjaldið er kr. 2.500 á hvern þátttakanda. Að sjálfsögðu verður kvöldvaka eftir mótið og er rétt að minna á að ef lið eða einstaklingar hafa eitthvað skemmtilegt fram að færa eins og skemmtiatriði, sögur, branda, ræður (ekki of langar samt), dans, söng eða bara eitthvað á kvöldvökunni, þá er það velkomið. Þeir sem eru með spurningar varðandi mótið er bent á að senda fyrirspurnir á [p+]molduxar@molduxar.is[p-] molduxar@molduxar.is[slod-] sem svarar öllu sem við kemur mótinu. Heimasíða mótsins: [v+]http://www.molduxar.is/index.php/forsida.html [v-]www.molduxar.is[slod-]