30 mar. 2010Nú var að ljúka leik Valsmanna og Hauka í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Þetta var annar leikur liðanna, en fyrri leiknum lauk með sigri Haukanna. Þeir léku það eftir í kvöld og sigruðu öðru sinni 73:82 og unnu því einvígið 2-0 og leika því í Iceland Express-deildinni að ári. Haukar hafa ekki verið í efstu deild síðan 2006-2007 en verða á ný í efstu deild að ári ásamt KFÍ sem sigraði 1. deildina í ár. Haukar unnu Þór Þorlákshöfn í undanúrslitunum 2-1 og núna Val 2-0.