29 mar. 2010Hamar · KR - Úrslit kvenna Í kvöld fór fram annar leikur KR og Hamars í úrslitum Iceland Express-deildarinnar og gerðu KR-stúlkur góða ferð austur fyrir fjall og sigruðu 69:81. Staðan í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn er því 1:1. Njarðvík · Stjarnan - Iceland Express-deild karla, 8·liða úrslit Á Stöð 2 Sport var sýndur leikur þessara liða í Ljónagryfjunni. Stjarnan sigraði 91:95 og knúði þar með fram oddaleik í Garðabænum um sæti í undanúrslitum. Snæfell · Grindavík - Iceland Express-deild karla, 8·liða úrslit Í Stykkishólmi áttust við liðin sem mættust í úrslitum Subwaybikarsins og þar höfðu Snæfellingar sigur líkt og í Grindavík fyrir helgi og eru því komnir áfram í undanúrslit. Leiknum lauk 110:93 en staðan í hálfleik var 55:57 fyrir gestina. Næstu leikir í 8-liða úrslitum karla verða á fimmtudag en þá mætast Keflavík og Tindastóll í oddaleik í þeirri rimmu.