26 mar. 2010KR 79:92 Hamar: Leikur 1 · Úrslit · Iceland Express-deild kvenna Hamar sigraði í kvöld í fyrsta leik liðanna í úrslitum kvenna. Hjá KR var Unnur Tara Jónsdóttir með 20 stig og 5 fráköst og Jennifer Finora var með 16 stig. Hjá Hamar var Kristrún Sigurjónsdóttir með 27 stig og 7 stoðsendingar og Sigrún Ámundadóttir var með 18 stig og 9 fráköst. Grindavík 94:95 Snæfell: Leikur 1 · Iceland Express-deild karla Snæfell gerði góða ferð til Grindavíkur og sigraði í æsispennandi leik 94:95 þar sem liðin skiptust á forystu í lokin. Hjá Grindavík var Brenton Birmingham með 26 stig, Gunnlaugur Eyjólfsson var með 11 stig og Ómar Sævarsson var með 11 stig og 12 fráköst. Stjarnan 64:76 Njarðvík: Leikur 1 · Iceland Express-deild karla Í Garðabænum tóku Njarðvík forystu í einvíginu gegn Stjörnunni og sigrðu 64:76. Jóhann Ólafsson var með 21 stig fyrir Njarðvík, Nick Bradford var með 13 stig og Friðrik Stefánsson var með 11 stig og 13 fráköst. Fjölnir 83:43 Þór Akureyri: Leikur 1 · 1. deild kvenna Fjölnir sigraði Þór örugglega í Dalhúsum 83:43 og geta tryggt sér sæti í efstu deild að ári í næsta leik á Akureyri.