26 mar. 2010Nú í kvöld kom í ljós hvaða lið mætast í úrslitunum. Valsmenn sigruðu Skallagrím í oddaleik í Vodafonehöllinni. Búið er að setja niður leikdaga í úrslitum 1. deildar karla. Það verða Haukar og Valur sem mætast í úrslitum um laust sæti í úrvalsdeild að ári. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki fer upp um deild. Leikdagar Leikur 1 Haukar · Valur - 28. mars kl. 19.15 Ásvellir Leikur 2 Valur · Haukar - 30. mars kl. 19.15 Vodafone-höllin Leikur 3 Haukar · Valur - 1. apríl kl. 19.15 Skírdagur Ásvellir · ODDALEIKUR EF ÞARF