25 mar. 2010Í gær fór fram oddaleikur Hauka og Þórs Þorlákshafnar um sæti í úrslitum 1. deildar karla. Leikið var á Ásvöllum og fór svo að Haukar höfðu sigur 69:58 og eru því komnir áfram. Þeir mæta annaðhvort Val eða Skallagrím en þessi liði mætast einnig í oddaleik í kvöld í Vodafonehöllinni kl. 20.00. Það lið sem vinnur svo aftur tvo leiki fylgir KFÍ upp um deild á næsta ári.