24 mar. 2010Dagana 29.-31. mars fara fram æfingabúðir Vals í körfuknattleik í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Umsjónamaður verður Lýður Vignisson yfirþjálfari yngri flokka Vals en honum til aðstoðar verða reyndir leiðbeinendur. Boðið verður upp á tvo aldursflokka, yngri og eldri. Yngri iðkendur fæddir 1998-2003 (6-11 ára) eru frá kl. 09:00-11:30. Ráðlegt er að senda börnin með smávegis næringu með á æfingarnar en hlé verður gert á æfingum milli 10:00-10:20 til þess að nærast. Eldri iðkendur fæddir 1993-1997 (12-16 ára) eru frá kl. 13:00-15:00 Æfingabúðirnar munu einkennast af grunn- og tækniþjálfun þar sem lögð verður áhersla á einstaklinginn. Æfingabúðir yngri iðkenda munu þó einnig einkennast af leikjum og skemmtun en á síðasta degi æfingabúðanna verður haldið mót milli iðkenda í hvorum aldurshópi fyrir sig. Þátttökugjald er kr. 3.000 krónur sem greiðist á fyrsta degi æfingabúðanna. 50% Vinaafsláttur: Ef þú ert Valsari og langar að bjóða einhverjum utan félagsins með þér í æfingabúðirnar þá er það alveg sjálfsagt. Ef þú færð einhvern vin með þér í æfingabúðirnar þá borgið þið báðir/báðar einungis hálft gjald. Skráningar berist til Lýðs á netfangið [p+]Lydur06@ru.is[p-] Lydur06@ru.is[slod-] eða í síma 694-4033. Vinsamlegast gefið upp nafn og kennitölu iðkenda sem og nafn, kennitölu og gsm-símanúmer foreldra.