23 mar. 2010Aga- og úrskurðarnefnd hefur skilað niðurstöðu úr þremur málum í dag. Í máli Semaj Inge hjá Haukum Hinn kærði fékk tvær tæknivillur í leiknum og var gert að yfirgefa völlinn. Ákvæði c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðamál á við í þessu máli og segir eftirfarandi: Um er að ræða fyrstu brottvísun leikmanns á þessu tímabili og telur nefndin því rétt að kærði hljóti áminningu, sbr. ákvæði a. liðar 2. mgr. 12. gr., sbr. og 1. mgr. 6. gr. sömu reglugerðar. Úrskurðarorð: Hinn kærði, Semaj Inge, sætir áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Þórs Þorlákshöfn og Hauka í leik í undanúrslitum 1 deild mfl. karla, sem fram fór þann 22. mars 2010. Hægt er að lesa niðurstöðu nefndarinnar og dóminn í heild [v+]http://www.kki.is/skjol/urskurdur_semaj.pdf[v-]með því að smella hérna[slod-].