23 mar. 2010Hamarsstúlkur tryggðu sér rétt í þessu sæti í úrslitunum í ár með því að leggja Keflavík að velli í Hveragerði 93:81 í oddaleik. Julia Demirer skoraði í annað sinn í seríunni 39 stig og tók einnig 18 fráköst í kvöld. Koren Schram var með 19 stig og Kristrún Sigurjónsdóttir 14 stig og 10 stoðsendingar. Hjá Keflavík var Birna Valgarðsdóttir með 28 stig og 9 fráköst og Svava Stefánsdóttir var með 23 stig og 8 fráköst. Það verða því KR og Hamar sem leika til úrslita í ár um Íslandsmeistaratitilinn og sigur í Iceland Express-deildinni.