23 mar. 2010Í dag fer fram blaðamannafundur í Íþróttamiðstöðinni Laugardal þar sem veitt verða verðlaun og úrvalslið seinni hluta mótsins kynnt. Þá munu þjálfarar liðanna sem fara í 8-liða úrslitin vera á svæðinu ásamt fjölmiðlum og úrslitakeppnin kynnt. Veitt verða verðlaun til fimm leikmanna í úrvalsliði seinni umferðarinnar, besta þjálfarann, dugnaðarforksins og besta leikmannsins. Einnig mun besti dómarinn fá verðlaun sem og bestu stuðningsmennirnir. Úrslitakeppnin hefst svo næsta fimmtudag og föstudag.