21 mar. 2010
Hamar 2:2 Keflavík Í kvöld fór fram fjórði leikur Hamars og Keflavíkur og þar gátu Keflavíkurstúlkur tryggt sér sæti í lokaúrslitunum. Hamarstúlkur voru ekki á sama máli og sigruðu 48:91 og því verður oddaleikur milli þessara liða sem sker úr um hvort liðið mætir KR í úrslitum Iceland Express-deildarinnar 2010. Valur 1:0 Skallagrímur Fyrsti leikur Vals og Skallagríms í undanúrslitum 1. deildar karla fór fram í kvöld og þar höfðu Valsmenn betur á heimavelli 95:89. Það lið sem fyrr vinnu 2 leiki mætir annaðhvort Haukum eða Þór Þ. í úrslitum um laust sæti í efstu deild að ári.