19 mar. 2010
Fjölnisstúlkur voru á þriðjdagskvöld krýndar deildarmeistarar í 1. deild kvenna. Nú tekur við úrslitakeppni milli Fjölnis og Þórs Akureyri sem hafnaði í öðru sæti um að taka sæti Vals í Iceland Express-deild kvenna að ári. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki fer upp en leikar hefjast á heimavelli Fjölnis á föstudaginn kemur kl. 19.15 í Dalhúsum.