18 mar. 2010Formannafundar KKÍ verður haldinn á laugardaginn kemur þann 20. mars í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal kl.10:00 í fundarsal E. Mikilvægt er að þeir forsvarsmenn félaga sem mæta skrái sig á fundinn sem fyrst. Það er einnig mikilvægt að ÖLL félög sendi formann sinn eða fulltrúa sinn á fundinn. Ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi fundinn eða einstök mál sem verða rædd á fundinum þá hikið þið ekki við að hafa samband við okkur Dagskrá fundarins: 1. Opnun fundarins 2. Ársreikingur fyrir árið 2009 og fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 3. Móta- og tölfræðikerfið 4. KKÍ 50 ára á árinu 2011 5. Starfsskýrslur fyrir 2009 – skil fyrir 15. apríl 6. Lokahóf KKÍ 1. maí 7. Reglugerðarbreytingar sem hafa verið gerðar frá síðasta körfuknattleiksþingi 8. Kjarasamningur félaganna og dómara rennur út eftir þetta keppnistímabil 9. Keppnisfyrirkomulag í meistaraflokkum karla og kvenna / er hægt að fjölga leikjum ? 10. Önnur mál Stjórn KKÍ.