15 mar. 2010
Keflavík varð um helgina Íslandsmeistari í 8. flokki stúlkna. Stelpurnar hafa staðið sig frábærlega á þessu tímabili og ekki tapað leik í vetur. Þær léku á heimavelli í lokaumferðinni, unnu alla leiki sína örugglega og eru því Íslandsmeistarar 2009-2010 í 8. flokki. KKÍ óskar þeim til hamingju með titilinn.