13 mar. 2010
KFÍ fékk í gærkvöldi afhentan deildarmeistarabikarinn en eins og kunnugt er liðið deildarmeistari í 1. deild karla og spilar meðal þeirra bestu í Iceland Express-deildinni á næsta tímabili. Mikill fjöldi lagði leið sína í íþróttahúsið á Ísafirði í gærkvöldi að fagna sínum mönnum en þeir fengu bikarinn afhentan eftir leik KFÍ og Ármanns.