12 mar. 2010Í kvöld fara fram 5 leikir í 1.deild karla og þar með klárast deildarkeppnin á þessu tímabili. KFÍ menn hafa tryggt sér ferð upp í Iceland Express-deildina að ári. Endanleg niðurröðun í úrslitakeppnina ræðst í kvöld en Haukar eru öryggir með annað sætið og heimaleikjaréttinn út úrslitakeppnina. Valur, Skallagrímur og Þór Þorlákshöfn eru öll með 22 stig og berst því um að ná þriðja sætinu á eftir Haukum. ÍA og Hrunamenn eru fallnir í 2. deild fyrir leiki kvöldsins. Leikir kvöldins hefjast kl. 19.15 nema leikur Hattar og Þórs Þ. sem hefst kl. 18.00. Skallagrímur · ÍA Haukar · Hrunamenn KFÍ · Ármann Höttur · Þór Þorlákshöfn Valur · Þór Akureyri · (ATH leikið er á Seltjarnarnesi en ekki í Vodafonehöllinni) KFÍ-menn munu væntanlega líkt og áður senda sinn leik út á netinu á www.kfi.is. Staðan fyrir leiki kvöldsins 1. KFÍ 30 2. Haukar 26 3. Valur 22 4. Skallagrímur 22 5. Þór Þ. 22 ----------------- 6. Höttur 14 7. Ármann 14 8. Þór Ak. 12 ----------------- 9. ÍA 8 10. Hrunamenn 0