11 mar. 2010Eins og undanfarin ár þá verða ýmsar uppákomur á leikjunum í úrslitakeppnum Iceland Express-deildana. Við byrjum á Borgarskotinu og fleiri uppákomur bætast svo við þegar líður á úrslitakeppnina. Borgarskotið verður í öllum leikjum í úrslitakeppninni. Tveir áhorfendur fá að reyna sig á milli 1. og 2. leikhluta og aðrir tveir á milli 3. og 4. leikhluta. Alls fá sem sagt fjórir að spreyta sig í hverjum leik. Þeir sem hitta fá ferð með Iceland Express fyrir tvo á einhvern af áfangastöðum þeirra. Fyrir þá sem vilja kynna sér málið nánar geta rifjað upp stemmninguna í Borgarskotinu í fyrra þegar Njarðvík og Keflavík áttust við með því að [v+]http://www.kki.is/borgarskot/borgarskotid.html [v-]smella hérna[slod-] og sjá mögnuð tilþrif.