11 mar. 2010Uppgjör seinni hluta Iceland Express-deildar kvenna fór fram í dag. Þau Heather Ezell úr Haukum og Ágúst S. Björgvinsson þjálfari Hamars voru valin besti leikmaðurinn og besti þjálfarinn fyrir seinna hluta deildarinnar. Julia Demirer úr Hamri var valin dugnaðarforkurinn en fimm manna liðið var skipað eftirfarandi leikmönnum. Heather Ezell - Haukar Birna Valgarðsdóttir - Keflavík Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir - KR Helga Hallgrímsdóttir - Grindavík Signý Hermannsdóttir - KR Besti leikmaðurinn - Heather Ezel Haukar Besti þjálfarinn - Ágúst S. Björgvinsson Hamar Dugnaðarforkurinn - Julia Demirer Hamar