9 mar. 2010Öldungamót á Akureyri: Að hætti Þórsbræðra Eiríks- og Jóhanns Sigurðssona. Mótið verður haldið laugardaginn 20. mars. Löglegir leikmenn eru 30 ára karlar og eldri, sem ekki hafa leikið í efstu og 1. deild á leikárinu. Þátttökugjald 2500 kr. á mann, pitsuveisla og verðlaunaafhending í mótslok. Síðan er meiningin að fara í vísindaleiðangur á ónefndan stað og enda svo kvöldið á skoðunarferð um bæinn. Skráning og upplýsingar hjá Eiríki Sigurðssyni á netfanginu [p+]eiisig@talnet.is[p-]eiisig@talnet.is[slod-] eða í síma 892-3166.