8 mar. 2010Landsliðsmaðurinn Haukur Pálsson hefur á undanförnum árum vakið mikla athygli liða í Evrópu og skóla í Bandaríkjunum. Sl. sumar ákvað Haukur að fara til Florida til að stunda nám og leika körfubolta með Montverde skólanum. Það hefur gengið mjög vel og hafa margir góðar háskólar verið á eftir honum og þar á meðal Maryland. Á dögunum var Haukur staddur á leik Maryland og Duke en hann var þar í boði skólans. Duke var fyrir þennan leik í 4. sæti á listanum yfir bestu skóla landsins og Maryland í 22. Hægt er að sjá listann [v+]http://espn.go.com/mens-college-basketball/rankings[v-]hér[slod-] Fyrir framan 18.000 áhorfendur höfðu heimamenn betur [v+]http://www.umterps.com/sports/m-baskbl/stats/2009-2010/md0303.html[v-]79:72[slod-] Nú hefur Haukur ákveðið að fara til Maryland en hann hefur gert munnlegt samkomulag við skólann og gengið verður frá öllum formlegum pappírsmálum í apríl. [v+]http://www.umterps.com/[v-]Heimasíða Maryland[slod-] Maryland leikur í ACC riðlinum sem hefur undanfarna áratugi verið einn af 2-3 bestu riðlum landsins. Á meðal skóla sem leika í ACC eru: North Carolina, Virginia, Florida State, Clemson og Georgia Tech svo einhverjir séu nefndir. Maryland vann NCAA meistaratitilinn 2002 sem er eini titill skólans. Hægt er að lesa ýmsan fróðleik um háskólakörfuboltann [v+]http://en.wikipedia.org/wiki/NCAA_Men's_Division_I_Basketball_Championship[v-]hér[slod-] Það er ljóst að spennandi tímar eru framundan hjá þessum stórefnilega leikmanni.