7 mar. 2010Núna kl. 19.15 hefst leikur Þórs Þ. og KFÍ í 1. deild karla sem var frestað á föstudaginn síðastliðin. Þá lá flug niðri allan daginn og KFÍ menn komust ekki suður. Fyrri leik þessara liða lauk með sigri Ísfirðinga 83:65. KFÍ hefur tryggt sér sigur í 1. deild en Þórsarar eru í harðri keppni um að tryggja sér gott sæti í úrslitakeppninni. Grindavík og Breiðablik eigast við í drengjaflokki og verður sá leikur einnig í beinni tölfræðilýsingu frá Röstinni. Smellið [v+]http://www.kki.is/motayfirlit [v-]hérna til að fylgjast með beinni tölfræðilýsingu[slod-].