6 mar. 2010Nú var að ljúka fyrsta leik Grindavíkur og Hauka í Röstinni í Grindavík. Haukar sigruðu 86:82 eftir jafnan og skemmtilegan leik. UMFG.is sýndi leikinn beint á netinu. Heather Ezell var einni stoðsendingu frá þrennunni með 35 stig, 12 fráköst og 9 stoðsendingar. Kiki Lund var með 20 stig og 9 stoðsendingar. Hjá Grindavík var Michelle DeVault með 27 stig og 3 fráköst og Petrúnella Skúladóttir var með 23 stig og 6 fráköst.