5 mar. 2010Í kvöld fara fram fjórir leikir í 1. deild karla. Hrunamenn fá Skallagrím í heimsókn á Flúðir. Hrunamenn eru fallnir í 2. deild en Skallagrímur eru öryggir með sæti í úrslitakeppninni. Þeir eru í baráttu um að vera sem efst eftir næstu umferð til þess að freista þess að ná heimaleikjaréttinum. Þór Akureyri á heimaleik gegn Haukum í Síðuskóla. Haukar hafa tveggja stiga forskot á Val og Þór Þorlákshöfn og leik til góða á Val að auki. Sigur í kvöld myndi nánast tryggja Haukum annað sætið og heimaleikjaréttinn út úrslitakeppnina. Þórsarar eru í 8. sæti með 12 stig eins og Höttur. Þór Þorlákshöfn fær svo KFÍ í heimsókn til Þorlákshafnar. KFÍ menn hafa tryggt sér sigur í deildinni og sæti í Iceland Express-deildinni að ári. Þórsarar eru í harðri keppni um að ná 2.-3. sæti og tryggja sér heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni. ÍA fær Hött í heimsókn í íþróttahúsið á Jaðarsbökkum uppi á Skaga. Skagamenn verða að sigra í siðustu tveim leikjum sínum til þess að forðast fall í 2. deild. ÍA vann fyrri leik þessara liða með 2 stigum.