5 mar. 2010Metþáttaka er á Nettómótinu sem haldið verður í 20 sinn í Reykjanesbæ um helgina. Alls hafa um 1000 þátttakendur skráð sig til leiks eða 148 keppnislið frá 22 félögum og leiknir verða 360 leikir á 13 völlum. Liðin sem boðað hafa þátttöku sína eru: Ármann, Breiðablik, Fjölnir, FSu, Grindavík, Haukar, Hekla, Hörður, Höttur, ÍA, ÍR, Keflavík, KFÍ, Kormákur, KR, Njarðvík, Reykdælir, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll, Valur og Þór Akureyri. Mótið fer fram í Heiðarskóla, Akurskóla, Íþróttahúsinu í Njarðvík, Íþróttahúsinu við Sunnubraut og Íþróttahúsinu á Ásbrú og kemur fjöldi sjálfboðaliða að skipulagningu þess sem er í höndum barna- og unglingaráðs köfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur. Auk leikja er boðið upp á ýmis konar afþreyingu og má þar nefna pizzuveislu, bíó, sund, kvöldvöku, stanslaust fjör í Reykjaneshöllinni og heimsókn til Skessunnar í hellinum auk kvöldvöku. Foreldar og keppendur gista í grunnskólum Reykjanesbæjar þar sem boðið verður upp á morgunmat, hádegismat og kvöldverð keppnisdagana. Umgjörð mótsins er glæsileg en markmið þess er að börn og foreldrar haldi heim sælir og glaði rmeð góðar minningar. Mótið hefst kl. 08:00 á laugardagsmorgun með móttöku liða í Holtaskóla en kl. 09:00 hefjast fyrstu leikir á öllum völlum. Sjá nánar á [v+]http://www.nettomot.blog.is/ [v-]nettomot.blog.is[slod-].