2 mar. 2010Lokaumferð Iceland Express-deildar kvenna fer fram í kvöld með heilli umferð. Hvaða lið nær 2. sætinu í kvöld: Keflavík hefur 2 stiga forskot og nægir því sigur til að tryggja sér 2. sætið. Ef Keflavík tapar í kvöld og Grindavík vinnur þá eru þau og Hamar öll jöfn. Þegar kíkt er á innbyrðisviðureignir þeirra eru þau enn öll jöfn, öll hafa unnið 4 leiki sín á milli í vetur. Þá skipta lokatölur í leik Keflavíkur og Hamars miklu máli, ef Hamar vinnur með 4 eða minna þá endar Keflavík í öðru sæti, Hamar í þriðja og Grindavík í fjórða. Ef Hamar vinnur með 5 eða 6 stigum þá verður Hamar í öðru sæti, Keflavík í þriðja og Grindavík í fjórða en ef Hamar vinnur með 7 stigum eða meira þá verður Hamar í öðru, Grindavík þriðja og Keflavík í fjórða.