1 mar. 2010KFÍ tryggði sér sæti að ári í Iceland Express-deildinni með sigri á liði ÍA í gærkvöldi. Það þýðir að þeir fara beint upp úr 1. deildinni. Þegar tveir leikir eru eftir hafa Ísfirðingar fjögurra stiga forskot á Hauka og betur innbyrðis þannig að þeir eru öryggir upp hvernig sem síðustu tveir leikirnir fara. KFÍ-menn fá svo deildarmeistartitilinn afhendan 12. mars en þá fer fram lokaumferðin í 1. deild karla þetta árið og þá mun ráðast röð liða í 2.-5. sæti deildarinnar. Þau lið leika í úrslitakeppni um eitt laust sæti til að fylgja Ísfirðingum upp um deild. KKÍ óskar KFÍ til hamingju með árangurinn.