28 feb. 2010
Sameiginlegt lið Þórs Þ. og Hamars er bikarmeistari í unglingaflokki karla eftir sigur á Njarðvík 60-61 í hörkuleik. Jafnt var á öllum tölum en Sunnlendingar höfðu sigur í endann. Maður leiksins var Hvergerðingurinn Oddur Ólafsson en hann var með 18 stig og stigahæstur sigurliðsins. Páll Helgason bætti við 12 stigum. Hjá Njarðvík var Hjörtur Hrafn Einarsson með 17 stig og Styrmir Gauti Fjeldsted setti 12 stig. [v+]http://www.karfan.is/frettir/2010/02/28/sunnlendingar_bikarmeistarar_i_unglingaflokki_karla[v-]Umfjöllun[slod-] og [v+]http://www.karfan.is/myndir/myndir/id/299[v-]myndasafn[slod-] úr leiknum er hægt að sjá á Karfan.is