28 feb. 2010
Keflavík varð bikarmeistari í 10. flokki kvenna eftir úrslitaleik við Hauka. Lokatölur leiksins 34-53 Keflavík í vil. Lovísa Falsdóttir var valin maður leiksins en hún átti fanta góðan leik fyrir Keflavík. Hún skoraði 16 stig, tók 5 fráköst og gaf 4 stoðsendingar. Næst stigahæst í Keflavík var Ingunn Embla Kristínardóttir með 13 stig. Hjá Haukum skoraði Margrét Rósa Hálfdanardóttir 18 stig og Lovísa Björt Henningsdóttir var með níu stig. [v+]http://www.karfan.is/frettir/2010/02/28/keflavik_bikarmeistari_i_10._flokki_kvenna[v-]Umfjöllun[slod-] og [v+]http://www.karfan.is/myndir/myndir/id/296[v-]myndasafn[slod-] úr leiknum má skoða á Karfan.is