28 feb. 2010
Grindavík varð bikarmeistari í unglingaflokki kvenna eftir æsispennandi leik við Hauka. Lokatölur leiksins 62-64. Íris Sverrisdóttir var valin maður leiksins en hún skoraði sigurkörfu leiksins en hún var með 19 stig í leiknum. Stigahæst hjá Grindavík var Alma Rut Garðarsdóttir með 20 stig. Hjá Haukum skoraði Helena Brynja Hólm 22 stig og Ragna Margrét Brynjarsdóttir var með 13 stig og 17 fráköst. [v+]http://www.karfan.is/frettir/2010/02/28/grindavik_bikarmeistari_i_unglingaflokki_kvenna[v-]Umfjöllun[slod-] og [v+]http://www.karfan.is/myndir/myndir/id/298[v-]myndasafn[slod-] má sjá á Karfan.is