27 feb. 2010
Haukar eru bikarmeistarar í Stúlknaflokki eftir æsispennandi úrslitaleik við Keflavík. Leikurinn var í járnum allan tímann og það var ekki fyrr en í lokin að úrslitin réðust. Lokatölur [v+]http://www.kki.is/widgets_game.asp?league_id=undefined&season_id=361&game_id=45840[v-]71-68[slod-] Haukum í vil. Dagbjört Samúelsdóttir var valin mikilvægasti leikmaður leiksins en hún skoraði 20 stig og tók 10 fráköst fyrir Hauka. Rannveig Ólafsdóttir setti 15 stig fyrir Hauka. Stigahæst hjá Keflavík var Telma Ásgeirsdóttir með 14 stig og Lovísa Falsdóttir bætti við 10 stigum. [v+]http://www.kki.is/widgets_game.asp?league_id=undefined&season_id=361&game_id=45840[v-]Tölfræði leiksins[slod-] [v+]http://www.karfan.is/frettir/2010/02/27/haukar_bikarmeistarar_i_stulknaflokki[v-]Umfjöllun[slod-] og [v+]http://www.karfan.is/myndir/myndir/id/293[v-]myndasafn[slod-] úr leiknum má sjá á Karfan.is