25 feb. 2010Aga- og úrskurðarnefnd tók tvö mál fyrir í vikunni á fundi sínum. [v+]http://www.kki.is/aganefndarmal.asp[v-]Hermann Daði Hermansson[slod-], þjálfari 7. fl. drengja, hjá Umf. Reykdæla fær einn leik í bann fyrir að vera vikið af velli í leik í síðustu umferð 7. flokks drengja. Umf. Tindastóll fær sekt og áminningu vegna hegðunar stuðningsmanna liðsins á heimaleik félagsins í Iceland Express-deild karla. Félagið þarf að tryggja viðeigandi ráðstafanir til að tryggja betur öryggi þeirra aðila sem koma að framkvæmda leikja. Með því að smella hér má sjá [v+]http://www.kki.is/skjol/urskurdur_tindastollsleikur.pdf[v-]úrskurðinn[slod-].