20 feb. 2010
Snæfell er Subwaybikarmeistari árið 2010 er þeir lögðu Grindavík að velli 92-81 í frábærum úrslitaleik. Leikurinn var jafn og í járnum allan tímann en það var ekki fyrr en á lokasprettinum sem Hólmarar náðu 10 stiga forystu. Sean Burton var valinn maður leiksins en hann skoraði 36 stig og var stigahæsti maður vallarins. Næstur honum í stigaskorun hjá Snæfelli var Sigurður Þorvaldsson með 14 stig. Hjá Grindavík var Brenton Birmingham með 17 stig og þeir Þorleifur Ólafsson og Darrell Flake voru með 16 hvor.