19 feb. 2010Fræðslunefnd KKÍ boðar til endurvakningarfundar FKÍ, félags körfuknattleiksþjálfara á Íslandi. Fundurinn fer fram laugardaginn 20. febrúar 2010 kl. 12:00 í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Boðið verður upp á veitingar og verður fundinum lokið tímanlega fyrir bikarúrslitaleik Hauka og Keflavíkur í kvennaflokki, sem hefst kl. 14. Öllum núverandi, fyrrverandi og verðandi þjálfurum er frjálst að mæta. Svo hægt sé að skipuleggja fundinn sem best meðal annars með tilliti til veitinga þá biðjum víð þá sem ætla að mæta á fundinn að tilkynna mætingu á [p+]kki@kki.is[p-] kki@kki.is[slod-] fyrir kl. 15.00 föstudaginn 19. febrúar. Með kveðju, Fræðslunefnd KKÍ