18 feb. 2010Í dag kl. 14.00 var haldinn blaðamannafundur fyrir komandi Subwaybikarúrslit á laugardaginn. Leikmenn og þjálfarar liðanna mættu ásamt blaða- og íþróttafréttamönnum sem tóku púlsinn á mannskapnum fyrir komandi átök. · Úrslitaleikur kvenna: Haukar · Keflavík kl: 14.00 · Dómarar í bikarúrslitaleik kvenna: · Sigmundur Már Herbertsson Sigmundur hefur dæmt tvo bikarúrslitaleiki kvenna áður (1997 og 1998) og er því að dæma sinn þriðja leik í úrslitum kvenna. Hann hefur einnig dæmt fimm bikarúrslitaleiki karla og er því að mæta í áttunda sinn í Höllina til þess að dæma bikarúrslitaleik. · Davíð Kr. Hreiðarsson er að dæma sinn fyrsta bikarúrslitaleik. · Pétur Hrafn Sigurðsson er eftirlitsdómari en hann er einnig formaður dómaranefndar og fyrrum framkvæmdastjóri KKÍ. Hann hefur fjórum sinnum verið eftirlitsdómari á bikarúrslitaleik. · Úrslitaleikur karla: Snæfell · Grindavík kl: 16.00 · Dómarar í bikarúrslitaleik karla: · Kristinn Óskarsson Kristinn er að dæma sinn sjöunda bikarúrslitaleik en hann hefur dæmt 1991, 92, 95, 98, 2002 og 08. Hann hefur einnig dæmt bikarúrslitaleiki kvenna árin 1991 og 2006 og er því mættur í 9. skipti í Höllina. · Rögnvaldur Hreiðarsson hefur dæmt tvívegis áður í Bikarúrslitum karla, fyrst 2004 og svo tveimur árum síðar 2006. Hann á einnig fjóra leiki að baki í bikarúrslitum kvenna og er því að dæma sinn sjöunda leik í úrslitunum. · Guðni E. Guðmundsson er í fyrsta sinn eftirlitsdómari á bikarúrslitaleik. Helsta tölfræði liðanna í úrslitum 2010 Snæfell Leið Snæfells í úrslitin 2010 Undanúrslit - 64:90 gegn Keflavík á útivelli 8-liða úrslit - 100:96 gegn Fjölni á heimavelli 16-liða úrslit - 130:75 gegn Hamar á heimavelli 32-liða úrslit - 49:122 gegn Álftanesi á útivelli Helstu tölfræðiþættir í Subwaybikarnum ( úr 3 leikjum af 4 ) 30.0 · Flest stig – Sean Burton 31.0 · Hæsta framlag – Hlynur Bæringsson 18.7 · Flest fráköst – Hlynur Bæringsson 7.3 · Flestar stoðsendingar – Sean Burton Grindavík Leið Grindavíkur í úrslitin 2010 Undanúrslit - 91:78 gegn ÍR á heimavelli 8-liða úrslit - 86:96 gegn Tindastól á útivelli 16-liða úrslit - 132:76 gegn Ármanni á heimavelli 32-liða úrslit - 77:147 gegn ÍG á útivelli Helstu tölfræðiþættir í Subwaybikarnum 25.7 · Flest stig – Páll Axel Vilbergsson 30.3 · Hæsta framlag – Ómar Sævarsson 16.3 · Flest fráköst – Ómar Sævarsson 11.3 · Flestar stoðsendingar – Arnar Freyr Jónsson Haukar Leið Haukastúlkna í úrslitin 2010 Undanúrslit - 73:41 gegn Njarðvík á heimavelli 8-liða úrslit -61:84 gegn Snæfelli á útivelli 16-liða úrslit - 68:53 gegn Val á heimavelli Helstu tölfræðiþættir í Subwaybikarnum 21.3 · Flest stig – Heather Ezell 29.0 · Hæsta framlag – Heather Ezell 10.3 · Flest fráköst – Heather Ezell 8.7 · Flestar stoðsendingar – Heather Ezell Keflavík Leið Keflavíkurstúlkna í úrslitin 2010 Undanúrslit - 48:97 gegn Fjölni á útivelli 8-liða úrslit - 86:72 gegn Hamar á heimavelli 16-liða úrslit - 70:61 gegn Grindavík á heimavelli Helstu tölfræðiþættir í Subwaybikarnum 23.0 · Flest stig – Kristi Smith 25.0 · Hæsta framlag – Kristi Smith 7.3 · Flest fráköst – Bryndís Guðmundsdóttir 5.0 · Flestar stoðsendingar – Bryndís Guðmundsdóttir