15 feb. 2010Föstudaginn 19. febrúar kl. 11:30-13:00 stendur Íþróttabandalag Reykjavíkur fyrir hádegisfundi um næringu íþróttaiðkenda. Á fundinum verður forsvarsmönnum íþróttafélaga og íþróttamannvirkja kynntar leiðir til að stuðla að hollari næringu íþróttaiðkenda. Fundurinn fer fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, sal E. Dagskrá Kl. 11:30 Gígja Gunnarsdóttir fundarstjóri og formaður útbreiðslusviðs ÍBR setur fundinn. Kl. 11:35 Hólmfríður Þorgeirsdóttir kynnir leiðbeiningar Lýðheilsustöðvar um framboð á matvörum hjá íþróttafélögum og í íþróttamannvirkjum. Kl. 11:50 Margrét og Ragnhildur hjá Knattspyrnufélaginu Val kynna þær áherslubreytingar sem hafa verið gerðar í framboði á næringu í íþróttamannvirkjum þeirra. Gefin verða hagnýt dæmi sem geta nýst íþróttamannvirkjum og íþróttafélögum vel. Kl. 12:05 Ólafur Sæmundsson næringarfræðingur fjallar um næringu íþróttafólks. Leitast verður við að svara spurningum eins og: Þarf íþróttafólk að nota fæðubótarefni eða orkudrykki? Hvað gæti komið í staðinn fyrir slíkar vörur? Kl. 13:00 Fundarlok. Ávaxtabíllinn býður uppá hollar og léttar veitingar meðan á fundinum stendur. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfangið annalilja@ibr.is í síðasta lagi fimmtudaginn 18. febrúar. Fundurinn er opinn öllum og er aðgangur ókeypis.