12 feb. 2010Nú hefur FIBA Europe tilkynnt hvaða leikmenn eru bestu ungu leikmenn ársins 2009. Það kom í hlut spánverja að eiga báða þessa leikmenn en það voru þau Ricky Rubio og Alba Torrens sem voru valin best. Ricky Rubio er að fá þessa útnefningu þriðja árið í röð en hann er 1.90 cm hár bakvörður sem tók þátt í sínu öðru stórmóti með landsliði Spánar þar sem þeir unnu sinn fyrsta evrópumeistaratitil í Póllandi í haust. Þar var hann með 5.9 stig, 2.2 fráköst og leiddi lið sitt með 3.9 stoðsendingar að meðaltali í leik. Ricky, sem var valinn fimmti í nýliðavali NBA af Minnesota Timberwolves, kaus að fresta för sinni Vestur og leika áfram á Spáni um sinn. Þar færði hann sig frá liði DKV Joventut og samdi við Barcelona. Milan Macvan frá Serbíu var annar í valinu að þessu sinni og Jan Vesely frá Tékklandi þriðji en Ricky vann með yfirburðum í vali almennings og dómnefndar. Alba Torrens var í bronsliði Spánar í Evrópukeppni kvenna 2009 en hún leikur stöðu bakvarðar og er 1.92 cm. á hæð. Hún leiddi U20 ára lið Spánar í stigum og fráköstum þegar liðið hlaut silfur í Evrópukeppninni. Alba leikur með liði sínu Halcon Avenida sem tekur þátt í Euroleague kvenna. Í öðru sæti var Louice Halvarrson frá Svíþjóð og Jelena Milovanovic frá Serbíu var þriðja.